Flokkahópur miðjumanna kallar eftir norrænni nefnd um öryggis og varnarmál – Sterk skilaboð eru send með ákvörðun Svíþjóðar
Flokkahópur miðjumanna kallar eftir því að samstarf Norðurlanda er varðar varnar- og öryggismál verði styrkt með sérstakri þingnefnd. Hópurinn lýsir yfir stuðningi við ákvörðun sænska þingsins frá 10. júní sl. þar sem sænska ríkisstjórnin er hvött til að vinna að því að slík nefnd verði sett á laggirnar.
– Ákvörðun Svíþjóðar inniheldur mikilvæg skilaboð til hinna Norðurlandanna: Þingmenn vilja sameiginlegt ferli með sterkum þinglegum grunni, segir Jouni Ovaska, formaður Flokkahóps miðjumanna. Við styðjum sænska þingið heilshugar.
Norrænu ríkisstjórnirnar hafa enn ekki samþykkt tillöguna, en flokkahópurinn vonast til að ákvörðun Svíþjóðar muni flýta fyrir viðræðunum.
Aðild að NATO eykur þrýsting á að landamærahindranir verði afnumdar
Flokkahópur miðjumanna leggur einnig áherslu á nauðsyn þess að afnema landamærahindranir sem koma í veg fyrir borgaralegan og hernaðarlegan hreyfanleika milli Norðurlandanna. Aðild Finnlands og Svíþjóðar að NATO hefur aukið þörfina fyrir hraða og greiða landamæraflutninga í kreppuástandi.
– Hernaðarlegar landamærahindranir eru oft tengdar borgaralegum hindrunum og því snýst þetta um að efla samþættingu Norðurlandanna á öllum stigum,“ segir Heidi Greni frá Flokkahópi miðjumanna .
Norðurlöndin eru mjög háð flutningaleiðum á Eystrasalti og leggur Flokkahópur miðjumanna áherslu á nauðsyn þess að þróa aðrar tengingar milli Noregs, Svíþjóðar og Finnlands. Flokkahópurinn kallar einnig eftir endurskoðun á Helsingfors-samningnum þannig að utanríkis-, öryggis- og varnarmálastefna verði hluti af samningnum.
Heimsóknin til Blekinge undirstrikar mikilvægi varnarsamstarfsins
Meðlimir Flokkahóps miðjumanna tóku þátt í fundi forsætisnefndar Norðurlandaráðs dagana 10.–11. júní í Blekinge í Svíþjóð. Á dagskránni voru heimsóknir í sjóherstöðina Saab Kockums og skipasmíðastöðina í Karlskrona. Auk Jouni Ovaska og Heidi Greni tóku Lars-Christian Brask og Helena Gellerman þátt í fundunum.