Birt 21.04.2026

Víðtækur stuðningur við norrænt samstarf við Kanada

Flokkahópur miðjumanna kynnti á þemaþinginu í Ósló tillögu sína um aukið samstarf milli Norðurlandanna og Kanada. Tillagan naut víðtæks stuðnings Norðurlandaráðs í  fyrstu umræðu sem fór fram á norska Stórþinginu.

Mikilvægi Norðurslóða hefuraukist á síðustu árum í alþjóðlegum stjórnmálum. Á sama tíma hefur virkni Norðurskautsráðsins veikst eftir að eitt aðildarríkjanna, Rússland, hefur í raun verið útilokað úr því samstarfi. Jafnframt stendur svæðið frammi fyrir miklum áskorunum, bæði á sviði borgaralegra mála og öryggismála. Að þessum ástæðum lagði Flokkahópur miðjumanna til að Norðurlönd vinni að auknu samstarfi við Kanada. Fokkahópurinn fékk tækifæri til að kynna tillögu sína á þingfundi þemafundar Norðurlandaráðs í Ósló.

Tillagan fékk sterkan stuðning annarra flokkahópa. Það var Johan Dahl úr Flokkahópi miðjumanna sem mælti fyrir tillögunni á fundinum:

– Norðurlönd hafa ávallt litið til nágrannalanda sinna, en á tímum alþjóðlegrar óvissu er mikilvægt að við horfum enn meira til vesturs – til Kanada. Við deilum ekki aðeins landamærum á Norðurslóðum, heldur einnig grundvallargildum. Gagnkvæmur skilningur okkar á lýðræði, áhersla á jafnrétti og menningarleg tengsl gera Kanada að eðlilegum og nánum bandamanni.

Einmitt þessi líkindi milli Norðurlandanna og Kanada eru mikilvægur grunnur fyrir nánara samstarf, að mati flokkahópsins.

– Þegar við tölum við Kanada tölum við við aðila sem skilja samfélagsgerð okkar og sýn á umheiminn.

Tillagan verður nú tekin til umfjöllunar í forsætisnefnd Norðurlandaráðs og síðar tekin til atkvæðagreiðslu á komandi þingi.

Mynd: Johan Dahl í ræðustól Stórþingsins.