Árangur í umhverfismálum fyrir Flokkahóp miðjumanna
Breytingar á hafstraumum í Atlantshafi geta haft víðtækar afleiðingar. Tillaga Flokkahóps miðjumanna um að Norðurlönd taki sameiginlega á málinu var samþykkt á þingi Norðurlandaráðs. Einnig var tillaga hópsins um endurvinnslu byggingarúrgangs samþykkt.
Atlantshafshringrásin í norður-suður stefnu, betur þekkt sem AMOC, er einn af lykilþáttum í hnattræna loftslagskerfinu. Flokkahópur miðjumanna fagnar þeim jákvæðu viðbrögðum sem tillagan fékk. Sama á við um tillöguna um endurvinnslu byggingarúrgangs á Norðurlöndum.
Breytingar á AMOC myndu hafa umbyltandi áhrif á samfélög Norðurlanda. Breytingar á fiskistofnum, vistkerfum hafsins og land- og skógrækt myndu veikja forsendur fæðuöryggis og samfélagsöryggis. Norræna sjálfbærninefndin hefur fengið upplýsingar frá fremstu sérfræðingum hjá Potsdam-stofnuninni fyrir loftslagsrannsóknir og Veðurstofu Íslands og hyggst nú senda bréf til ENVI-nefndar Evrópuþingsins með skýra áskorun: að forgangsraða og fjármagna gagnasöfnun á Norður-Atlantshafi.
– Norðurlönd ættu að leggja áherslu á mikilvægi AMOC í samskiptum við Evrópusambandið og vinna að því að málið verði samþætt viðeigandi stefnumótun á sviði umhverfis-, loftslags- og hafmála. Þess vegna hefur nefndin samið bréf sem senda á til ENVI-nefndar Evrópuþingsins. Meginskilaboðin eru skýr: óvissa er ekki ástæða aðgerðaleysis. Þvert á móti krefst ábyrg stefna þess að við undirbúum okkur tímanlega, segir Krista Mikkonen úr Flokkahópi miðjumanna, finnskur formaður Norrænu sjálfbæninefndarinnar.
Á sviði byggingarmála gat Flokkahópur miðjumanna einnig fagnað stuðningi Norðurlandaráðs við umhverfismál. Stór hluti efnanotkunar Norðurlanda tengist byggingariðnaði og stór hluti losunar yfir líftíma mannvirkja tengist byggingarefnum. Sameiginlegar skilgreiningar á úrgangi, samræmdir staðlar og stafrænar lausnir væru því mikilvægar til að skapa sameiginlegan hringrásarmarkað og stærðarhagkvæmni fyrir endurunnin byggingarefni.
– Atvinnulífið á Norðurlöndum deilir sýn okkar. Nú er komið að ríkisstjórnum Norðurlandanna að bregðast við, segir Krista Mikkonen.
Á myndinni: Krista Mikkonen. Ljósmynd: Magnus Fröderberg/Norden.org.