Birt 01.12.2025

Kærkomin ákvörðun fyrir tjáningarfrelsið

Svíþjóð státar sig oft af því að vera með heimsins elsta fjölmiðlafrelsi. Á þriðjudag samþykkti yfirgnæfandi meirihluti í Norrænu þekkingar- og menningarnefndarinnar tillögu frá Flokkahópi miðjumanna um að styðja óháða blaðamennsku á Norðurlöndum.

– Þegar við hittumst á fundinum í Turku síðastliðið sumar, fundum við fljótt að ríkur vilji var til að ræða skilyrði blaðamennsku. Framundan eru miklar áskoranir. Sérstaklega stendur staðbundin blaðamennska höllum fæti og gæti glatast. Við verðum að ræða þetta, segir Kathrine Kleveland frá Noregi, leiðtogi Flokkahóps miðjumanna í nefndinni.

Catarina Deremar frá Svíþjóð tók þátt í rannsókn á þjónustu opinberra fjölmiðla í Svíþjóð og telur hún að þó svo að pólitísk fjarlægð frá fjölmiðlum sé augljós þá verði engu að síður að ræða samfélagslegt hlutverk blaðamennsku.

– Þetta snýst meðal annars um að geta miðlað mikilvægum upplýsingum ef ógnir steðja að en einnig um að vernda tjáningarfrelsið og þá fréttamiðla sem ná til fjölda fólks. Sem lýðræðisríki ber okkur skylda til að standa vörð um tjáningarfrelsið.

Tillaga Flokkahóps miðjumanna verður tekin til umræðu á þingi Norðurlandaráðs sem fram fer í Stokkhólmi í október.

Mynd: Þátttakendur Flokkahóps miðjumanna á fundi nefndarinnar í Ósló. Lauri Salo, fulltrúi Norðurlandaráðs æskunnar: Kathrine Kleveland, Noregi; Guðbrandur Einarsson, Íslandi; Catarina Deremar, Svíþjóð og Sigurjón Þórðarson, Íslandi.