Birt 27.09.2025

Lyftum hlutverki almannavarna í norrænu samstarfi!

Flokkahópur miðjumanna leggur áherslu á heildarvarnir og viðbúnað, auk þess að auðvelda og skýra samstarf milli borgaralegra aðila og viðbúnaðar aðila. Flokkahópur miðjumanna telur að skipulag þessara tveggja sviða verði að vera sambærilegt.

Á fundum Norðurlandaráðs í september í Ósló lagði Flokkahópur miðjumanna fram nýja tillögu um viðbúnað og almannavarnir. Tillöguna má rekja til þess að norrænt hernaðarlegt samstarf, Nordefco, hefur þróast mikið undanfarin ár, á meðan almannavarna og neyðarvarna samstarf, svonefnt Hagasamstarf, hefur ekki þróast á sama hátt. Það gerir samstarf þessara tveggja sviða erfiðara en ella.

– Almannavarnir, öryggi og seigla eru mikilvægur hluti hernaðaröryggis. Flokkahópur miðjumanna telur að borgaralegt neyrðarvarnasamstarf verði að fylgja hernaðarlega samstarfinu eftir til að þessi tvö svið geti unnið saman á sem skilvirkastan hátt, segir Jouni Ovaska, formaður Flokkahóps miðjumanna.

– Almannavarnir höfða til unga fólksins. Mikilvægt er að heildarviðbúnaðurinn sé einnig á dagskrá Norðurlandanna, þar sem ungt fólk getur auðveldlega unnið saman um viðbúnað á norrænum vettvangi, segir Andreas Salomonsson, fulltrúi Norðurlandaráðs æskunnar (UNR) og Flokkahóps miðjumanna.

Flokkahópur miðjumanna leggur meðal annars til að haldin verði sameiginlegur norrænn dagur almannavarna og viðbúnaðar, sem og sameiginlegar norrænar æfingar og heilbrigðisáætlun. Tillagan var samþykkt á fundi Flokkahóps miðjumanna í Ósló þann 15. september 2025.

Mynd: Fundur Flokkahóps miðjumanna í Ósló, 15. september 2025.