Birt 04.11.2026

Mikilvægi sameiginlegrar stefnu um samfélagsöryggi

Á þingi Norðurlandaráðs í Helsinki var meðal annars samþykkt stefna um samfélagsöryggi. Það er mál sem Flokkahópur miðjumanna hefur lengi kallað eftir.

Á undanförnum árum hefur komið í ljós hversu hratt öryggisumhverfi okkar getur breyst. Ógnir, sem fyrir aðeins nokkrum árum voru aðallega ræddar fræðilega, hafa orðið að veruleika. Heimsfaraldurinn, netógnir, skemmdarverk á mikilvægum innviðum og óöruggara alþjóðlegt umhverfi hafa sýnt að seigla samfélagsins er að minnsta kosti jafn mikilvæg hernaðarlegri varnargeta.

Því fagnar Flokkahópur miðjumanna vinnunni við að uppfæra stefnu Norðurlandaráðs um samfélagsöryggi. Þetta voru meðal skilaboða Jouni Ovaska, formanns Flokkahópus miðjumanna, til þingsins.

– Flokkahópur miðjumanna hefur um árabil unnið að því að færa borgaralegan viðbúnað ofar á hina norrænu dagskrá. Við viljum sjá samstarf þar sem borgaralegur viðbúnaður þróast samhliða hernaðarsamstarfi. Þegar norrænt varnarsamstarf dýpkar verðum við einnig að efla getu okkar til að takast sameiginlega á við borgaralegar kreppur, sagði Ovaska.

Flokkahópur miðjumanna telur að þörf sé á sameiginlegri norrænni stöðumynd. Upplýsingum, greiningum og mati þarf að deila bæði á embættismannastigi og pólitísku stigi. Sameiginleg stöðumynd er grundvöllur sameiginlegra aðgerða. Þar gegnir þinglegt samstarf mikilvægu hlutverki. Skýrslur utanríkis- og varnarmálaráðherra hafa lengi verið sjálfsagður hluti af starfi Norðurlandaráðs. Sami metnaður ætti að gilda um ráðherra sem bera ábyrgð á öryggi samfélagsins og borgaralegum viðbúnaði. Við þurfum einnig reglulegt pólitískt samtal á þessu sviði.

– Því vonumst við til að uppfærð stefna og þær tillögur sem teknar voru til umfjöllunar á þinginu í Helsinki verði skref í átt að samhæfðara norrænu samstarfi um heildarviðbúnað, þar sem borgaralegur og hernaðarlegur viðbúnaður haldast hönd í hönd, sagði Jouni Ovaska að lokum.

Mynd: Jouni Ovaska. Ljósmynd: Stine Østby/norden.org