Norðurlönd vilja sjálfbærari fatneyslu
Norðurlöndin þurfa að vekja athygli neytenda á sóun auðlinda innan tískuiðnaðarins. Gera þarf meira til að fræða um Svansmerkingu á fötum, textíl og leðri. Norðurlandaráð ákvað á þemaþingi sínu að grípa til aðgerða gegn „grænþvotti“ iðnaðarins og villandi markaðssetningu. Ákvörðunin er að frumkvæði Norðurlandaráðs æskunnar og Flokkahópur miðjumanna studdi.
Þrátt fyrir sterka sjálfsmynd sem sjálfbært svæði eru Norðurlöndin meðal stærstu neytenda fatnaðar í heiminum. Með hraðri framleiðslu, stuttum líftíma fatnaðarins og miklu magni textílúrgangs sem afleiðingu, er tískuiðnaðurinn talinn vera einn helsti orsakavaldur loftslagsvandans.
Árlega er gríðarlegt magn af textíl brennt í Evrópu eða sent til fátækra landa þar sem hann endar á ruslahaugum, á sama tíma heldur neyslan áfram að aukast.
– Ef allir lifðu eins og við þyrftum við um fjórar jarðir, benti Oda Indgaard frá Noregi á í umræðum um tillöguna um grænni textíliðnað á þemaþingi Norðurlandaráðs í Ósló.
Í tillögunni sem sjálfbærninefnd Norðurandaráðs lagði fram á þemaþinginu er lögð áhersla á að lausnin felist ekki aðeins í því að kaupa minna, heldur einnig í að auka gæði og gera sjálfbært val auðveldara. Norræna umhverfismerkið Svanurinn er nefnt sem mikilvægt norrænt verkfæri, en þekking á merkingunni fyrir textíl er enn lítil bæði meðal framleiðenda og neytenda.
Á sama tíma er kallað eftir pólitískum aðgerðum til að takast á við vandann í öllu kerfinu.
Oda Indgaard aftur:
– Þetta leysist ekki með „skömm“ hjá neytendum – við þurfum skýrar reglur, kröfur um harðari aðgerðir gegn villandi markaðssetningu og innfluttum vörum af lélegum gæðum.
Auk þess að neytendur þurfa að vita hvað þeir eru að kaupa til að geta tekið upplýsta ákvörðun þarf neyslan líka að verða sjálfbærari á fleiri sviðum. Markmiðið er að gera endurnýtingu, viðgerðir og gæði að meira aðlaðandi valkosti en notkun og brottkast. Með sameiginlegum norrænum aðgerðum þarf að styrkja Svansmerkið sem staðal og auka rannsóknir á endurnýtingu textíls – sem fyrsta skref frá núverandi auðlindasóun í textíliðnaðinum.
Tillagan sem Norðurlandaráð ræddi og samþykkti var upphaflega lögð fram af Norðurlandaráði æskunnar.
– Við viljum sjá ábyrga neyslu, studda með Svansmerkinu og hagkvæmni í auðlindanýtingu. Við fögnum mjög víðtækum stuðningi við tillögu okkar, segir Lone Sandvik Kristiansen frá Norðurlandaráði æskunnar.
Mynd: Oda Indgaard og Lone Sandvik Kristiansen.