Samróma nefnd vill efla fjölmiðlalæsi ungs fólks
Tillaga Flokkahóps miðjumanna um að efla fjölmiðlalæsi ungs fólks hlaut samróma stuðning. Það varð ljóst þegar þekkingar- og menningarnefnd Norðurlandaráðs hélt sumarfund sinn í Skagen í Danmörku.
Nefndir Norðurlandaráðs halda um þessar mundir árlega sumarfundi sína. Þekkingar- og menningarnefnd kom saman í danska bænum Skagen til að afgreiða fjölda tillagna og jafnframt fara í nokkrar vettvangsheimsóknir. Á fundinum var tekin fyrir tillaga frá Flokkahópi miðjumanna um að efla fjölmiðlalæsi ungs fólks. Tillagan hlaut samhljóða stuðning nefndarinnar.
Tillagan byggir á fyrstu norrænu könnuninni um fjölmiðlalæsi (Nordic Media Literacy Survey) frá árinu 2025. Niðurstöðurnar sýna að þriðjungur ungs fullorðins fólks (16–44 ára) á erfitt með að fylgjast með fréttum og að fjórðungur barna og ungmenna (9–15 ára) forðast fréttir alfarið.
– Að geta tileinkað sér og skilið fréttir er lykilforsenda þess að fólk geti kynnt sér mikilvæg samfélagsmál og tekið virkan þátt í lýðræðissamfélagi. Þessu verðum við að bregðast við. Ég er mjög ánægð með að tillaga okkar hafi hlotið svo víðtækan stuðning, segir Ulrika Liljeberg frá Svíþjóð.
Flokkahópur miðjumanna leggur meðal annars til að mótuð verði sameiginleg norræn stefna um fjölmiðlalæsi með sérstakri áherslu á börn og ungmenni. Jafnframt vill hópurinn að kennsla um hlutverk fjölmiðla verði efld í skólum. Einnig telur hann mikilvægt að halda áfram að mæla fjölmiðlalæsi meðal ungs fólks. Sandra Sigurðardóttir frá Íslandi var einnig fulltrúi Flokkahóps miðjumanna á fundinum.
– Börn og ungmenni þurfa að fá þau verkfæri sem þarf til að meta upplýsingar úr ólíkum heimildum með gagnrýnum hætti og skilja mikilvægi blaðamennsku. Takist okkur það ekki er hætta á aukinni skautun í samfélaginu. Einnig er mikilvægt að við á Norðurlöndum setjum sameiginleg viðmið um hvernig við getum tekist á við hraða þróun gervigreindarinnar.
Ákvörðunin felur í sér að tillagan verður nú lögð fyrir Norðurlandaráð í heild sem tillaga til samþykktar á næsta fundi. Hljóti hún einnig stuðning þar verður hún að formlegum tilmælum til Norrænu ráðherranefndarinnar.
Á myndinni: Sandra Sigurðardóttir og Ulrika Liljeberg.