Kallað eftir sameiginlegri norrænni stöðumynd á sviði borgaralegs viðbúnaðar
Á sumarfundi forsætisnefndar Norðurlandaráðs, sem vegna verðurs var haldinn með fjarfundabúnaði, var fjallað um nýja stefnu um samfélagsöryggi. Flokkahópur miðjumanna vill að mótuð verði sameiginleg norræn stöðumynd og að samstarfi um borgaralegan viðbúnað verði lyft upp á sama stig og hernaðarsamstarf Norðurlandanna.
Veðurguðirnir tóku stjórnina þegar forsætisnefnd Norðurlandaráðs ætlaði að funda í Nuuk. Flugvélin með þátttakendum fundarins var komin yfir höfuðborg Grænlands þegar henni var snúið við vegna hvassviðris. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem veðrið setur strik í reikninginn hjá Norðurlandaráði en sjaldan hafa fundargestir komist svo nálægt áfangastað án þess að komast alla leið. Þess í stað var fundurinn haldinn með fjarfundabúnaði.
Á fundinum var rætt um drög að uppfærðri stefnu Norðurlandaráðs um samfélagsöryggi. Gildandi stefna er frá árinu 2019. Margar af þeirra ógnana sem þá voru aðeins fræðilegar hafa síðan þá orðið að veruleika.
Flokkahópur miðjumanna lagði áherslu á mikilvægi þess að fyrir hendi sé sameiginleg norræn stöðumynd, bæði á embættismanna- og stjórnmálastigi. Samstarf bæði um borgaralegan viðbúnað og hernaðarlegt samstarf ætti að miða að því að Norðurlöndin deili sömu stöðumynd og geti brugðist sameiginlega við.
– Ein leið til að skapa sameiginlega stöðumynd eru umræða á vettvangi þingmanna. Skýrslur varnarmála- og utanríkisráðherra hafa lengi verið mikilvægur hluti af þingum Norðurlandaráðs en ráðherrar sem fara með málefni samfélagsöryggis hafa dregist aftur úr, segir Jouni Ovaska, formaður Flokkahóps miðjumanna.
– Flokkahópur miðjumanna hefur um árabil kallað eftir skýrslu frá norrænum ráðherrum sem bera ábyrgð á samfélagsöryggi. Loks fékkst skýrsla samstarfsráðherranna um neyðar- og viðbúnaðarmál, það var á þingi Norðurlandaráðs í Helsinki árið 2022, skömmu eftir heimsfaraldurinn. Nú er tímabært að endurvekja þá „hefð“, þegar þing Norðurlandaráðs kemur saman í Helsinki í lok október 2026.
Flokkahópur miðjumanna lagði síðasta haust fram tillögu um að efla hlutverk borgaralegs viðbúnaðar í norrænu samstarfi. Það var gert með hliðsjón af þeirri miklu þróun sem átt hefur sér stað í hernaðarsamstarfi Norðurlanda innan NORDEFCO. Flokkahópurinn vill að borgaralegt samstarf og hernaðarsamstarf verði samræmd og byggð upp með svipuðum hætti, þannig að heildarmyndin verði skýrari, ekki síst með tilliti til stjórnmálalegrar forystu.
Stefna Norðurlandaráðs um samfélagsöryggi er nú í endurskoðun og í framhaldinu verða lagðar fram ýmsar tillögur til norrænu ríkisstjórnanna. Gert er ráð fyrir að það verði gert á þingi Norðurlandaráðs í Helsinki í október 2026.