Norðurlönd þurfa að bregðast sameiginlega við yfirlýsingum Trumps um Grænland
Forseti Bandaríkjanna, Donald Trump, hefur enn á ný gefið í skyn að Grænland ætti að tilheyra Bandaríkjunum. Þessar yfirlýsingar eru alvarlegar og krefjast skýrra svara frá Norðurlöndunum, segir Jouni Ovaska, formaður Flokkahóps miðjumanna í Norðurlandaráði.
Ovaska leggur áherslu á að öryggi Grænlands sé þegar tryggt í gegnum NATO og skuldbindingar Norðurlandanna. Sjálfstjórn Grænlands og réttur þess til sjálfsákvörðunar er óumdeilanlegur.
Hann leggur til sameiginlegan öryggisfund norðurslóða með ráðherrum frá Norðurlöndunum, Kanada og Bandaríkjunum til að styrkja landhelgi Grænlands og Danmerkur. Allt norðurslóðasvæðið þarf að skoða sem eina heild í öryggismálum.
„Staða Grænlands er ekki samningsatriði. Norðurlönd og Kanada ættu að tryggja bindandi öryggi og saman að styrkja norðurslóðavídd NATO. Það þarf að grípa til aðgerða strax,“ segir Ovaska.