Birt 21.04.2026

Greinaflokkar

Nýr varaformaður Flokkahóps miðjumanna

Á hópfundi Flokkahóps miðjumanna á þemaþingi Norðurlandaráðs í Osló á fimmtudag var Halla Hrund Logadóttir kjörin nýr varaformaður flokkahópsins. Halla er þingmaður og á sæti á Alþingi.

Þemaþing Norðurlandaráðs árið 2026 fer nú fram í Osló og ber yfirskriftina: Eru Norðurlöndin búin undir áföll? Á fimmtudaginn hélt Flokkahópurinn aðalfund sinn þar sem meðal annars var kosið í stjórn hópsins. Jouni Ovaska frá Finnlandi var endurkjörinn formaður. Nýr varaformaður varð Halla Hrund Logadóttir frá Íslandi.

– Mér er heiður að hlótaj traust hópsins sem varaformaður hans. Á þessum tímum er mikilvægt að standa vörð um öflugt norrænt samstarf. Á okkar svæði og á Norðurslóðum sjáum við vaxandi öryggispólitískar áskoranir og sameiginlega verðum við að tryggja öryggi okkar. Umræðurnar á þessu þingi sýna að það er margt sem Norðurlönd þurfa að gera til að takast á við komandi krísur.

Halla Hrund Logadóttir tekur við af Johan Dahl sem varaformaður flokkahópsins. Johan lét af embætti þar sem hann hefur verið skipaður nýr forseti Løgtingsins í Færeyjum.

Mynd: Halla Hrund Logadóttir og Jouni Ovaska